Mannlegi þátturinn

Ásrún í Hrísey, bótúlismavinkill og María lesandi vikunnar

Stofnfundur Þróunarfélags Hríseyjar var haldinn í síðustu viku, en þróunarfélaginu er ætlað vera leiðandi í almennri byggða- og uppbyggingaþróun í Hrísey í samvinnu við íbúa, fyrirtæki og félög í Hrísey ásamt Akureyrarbæ. Við fræddumst nánar um félagið og áform þess í Mannlega þættinum og slógum á þráðinn til Ásrúnar Ýrar Gestsdóttur, verkefnastjóra Áfram Hríseyjar, í þættinum í dag.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn niðursuðudósum og bótúlisma.

Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn María Elísabet Bragadóttir rithöfundur. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María talaði um eftirtaldar bækur:

Austan Eden e. John Steinbeck

Rúmmálsreikningur I e. Solvej Ball

My Body e. Emily Ratajkowski

Svo talaði hún um Wuthering Heights e. Emily Bronte, Tove Ditlevsen og ítalska rithöfundinn Nataliu Ginzburg

Tónlist í þættinum:

Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Chip Taylor og Þorsteinn Eggertsson)

Sjómannavalsinn / Hjaltalín (Svavar Benediktsson og Kristján frá Djúpalæk)

Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

26. júní 2023

Aðgengilegt til

26. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,