Mannlegi þátturinn

Hringfarinn, Már og Max í Englandi og Mannflóran

28. maí verða frumsýndir nýir íslenskir heimildarþættir um ferðalag hjónanna Kristjáns Gíslasonar og Ásdísar Rósu Baldursdóttur, en þau ferðuðust hringinn í kringum Ísland á mótorhjólum sumarið 2020. Í þáttunum er fylgst með hjónunum upplifa land og þjóð á nýjan hátt þegar þau hjóla 7000 kílómetra á 40 dögum. Þau Kristján og Ásdís komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frá þessum þáttum og ferðalaginu.

Síðastliðna 9 mánuði hefur Már Gunnarsson tónlistarmaður búið á Englandi þar sem hann stundar nám við enskan tónlistarháskóla. Hann segir það hafa verið áskorun fyrir hann og leiðsöguhundinn Max læra inn á nýjar aðstæður og bjarga sér útí hinum stóra heimi. Már segir fjölmörg tækifæri hafi gefist og hann farin koma fram á ýmsum viðburðum í London og sl. föstudag gaf hann út nýtt lag, Falling for you, sem hann tók upp í Liverpool í samstarfi við Dan Scholes pródúsent. Við heyrðum í og heyrðum nýja lagið í dag.

Mannflóran eru sjónvarpsþættir um fjölmenningu í íslensku samfélagi í umsjón Chanel Bjarkar Sturludóttur. Þjóðarímynd Íslands er breytast með auknum fjölda fólks af erlendum uppruna og íslensk mannflóra er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Í þáttunum er rætt við sérfræðinga og einstaklinga af erlendum uppruna, og ljósi er varpað á erfiðleikana sem þeir mæta í íslensku samfélagi sem og öllu því góða sem fjölmenningin færir okkur. Þær Chanel Björk og Álfheiður Marta Kjartansdóttir, leikstjóri þáttanna, komu til okkar í dag sögðu okkur betur frá Mannflórunni.

TÓNLIST Í ÞÆTTINUM:

La det svinge / Bobbysocks (Rolf Lövland)

Little green apples / Garðar Cortes (Bobby Russel)

Falling for you / Már Gunnarsson (Már Gunnarsson, Guðjón Steinn Skúlason og Tómas Eyjólfsson)

Amar Pelos Dois / Salvador Sobral (Louísa Sobral)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

17. maí 2023

Aðgengilegt til

17. maí 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,