Mannlegi þátturinn

Afleiðingar myglu, sumarveðrið og fordómar um yfirþyngd

Emilía Björg Atladóttir viðskiptafræðingur kom til okkar í dag og sagði okkur frá niðurstöðum rannsóknar um myglu- og rakavandamál í skólahúsnæði á Íslandi sem hún vann í lokaverkefni til meistaraprófs í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík. Þar rannsakaði hún meðal annars afleiðingar myglu í skólum og upplifun skólastjórnenda á starfsánægju á skólasamfélagið. Við fengum Emilíu til segja okkur betur frá þessari rannsókn og niðurstöðunum í þættinum.

Elín Björk Jónasdóttir kom til okkar eftir sumarfríið í veðurspjall. Við ræddum við hana um eldgosið í sumar, hvernig það var í hennar stöðu vera í fríi þegar eldgos brestur. Eins fórum við með henni yfir sumarveðrið, sólarstundirnar, hitasveiflur, vætu og þurrk og lokum um næstu vikur í kortunum. Það var af nógu taka með Elínu í dag.

Í lokaverkefni Steinunnar Helgu Sigurðardóttur, í mannauðsstjórnun við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, skoðaði hún birtingarmyndir fordóma og mismununar á vinnumarkaði þegar kemur konum í yfirþyngd, en engar íslenskar rannsóknir eru til sem tengjast fordómum og mismunun á vinnumarkaði. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur í ljós konur í yfirþyngd upplifa fordóma og mismunun á vinnumarkaði, á borð við móðgandi athugasemdir, niðurlægjandi hegðun á vinnustaðnum, kröfu um leggja meira á sig og jafnvel vinnumissi svo eitthvað nefnt. Við ræddum við Steinunni í þættinum.

Tónlist í þættinum:

Brestir og brak / Katrín Halldóra Sigurðardótti (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason)

blánar yfir Berjamó / Ragnhildur Gísladóttir og Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarson og Stefán Jónsson)

Amor em tons de sol maior / Ana Moura (Nuno Rodrigues)

I saw the light / Todd Rundgren (Todd Rundgren)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

15. ágúst 2023

Aðgengilegt til

15. ágúst 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,