Mannlegi þátturinn

Er þetta list? Rigningarspjall og álegg með Kristínu

Lendir þú stundum í því klóra þér í kollinum á listsýningum? Eða stígur þú helst ekki færi inn á listasafn? Þá ætlum við fjalla um viðburð í þættinum í dag sem gæti einmitt verið fyrir þig. Þar verður meðal annars tekið á vangaveltum eins og: Er þetta list? Ég hefði getað gert þetta! Það sem fólki dettur í hug! Um er ræða viðburð á vegum Listasafns Reykjavíkur og þau Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá safninu og Halla Margrét Jóhannesdóttir verkefnastjóri miðlunar, sögðu okkur meira frá þessu í þættinum.

Svo kom Elín Björk Jónasdóttir til okkar í dag í sitt vikulega veðurspjall. Í dag fræddi hún okkur um rigningu en þetta veðurspjall var reyndar það síðasta með henni í bili þar sem hún er byrja í nýrri vinnu. En við erum þó alls ekki hætt ræða veðrið hér í Mannlega þættinum, nema síður því Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur verður með okkur annan hvern þriðjudag í veðurspjalli í vetur.

Kristín Aðalsteinsdóttir kennari og fræðimaður heldur úti vinsælum Facebookhópi um brauðbakstur þar sem hún miðlar af þekkingu sinni en Kristín hefur nánast aldrei keypt brauð úr búð síðan árið 1974. Svo var það um daginn Kristínu var boðið halda fræðsluerindi á Amtsbókasafninu á Akureyri um fyrirbæri sem tengist brauði sterkum böndum - sem sagt fræðsluerindi um álegg. Við skruppum í heimsókn til Kristínar og fengum vita meira.

Tónlist í þættinum

Ó borg mín borg / KK & Björk (Haukur Morthens og Vilhjálmur Guðmundsson)

Don?t Know What?s Normal / Shintaro Sakamoto (Shintaro Sakamoto)

Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Snæland Gunnarsson og Þorsteinn Eggertsson)

Heim í Búðardal / Ðe Lónlí Blú Bojs (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

26. sept. 2023

Aðgengilegt til

26. sept. 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,