• 00:07:55Eva Ásrún og Erna - föstudagsgestir
  • 00:23:29Eva og Erna - seinni hluti
  • 00:39:40Matarspjallið - íslenskt nammi

Mannlegi þátturinn

Erna og Eva föstudagsgestir og nammispjall

Föstudagsgestirnir okkar í dag voru þær Erna Þórarinsdóttir og Eva Ásrún Albertsdóttir söngkonur sem byrjuðu ferilinn í heimabænum sínum, Akureyri, sungu með hljómsveitinni Hver og mynduðu svo sönghópinn Erna - Eva - Erna ásamt Ernu Gunnarsdóttur og síðar voru þær partur af Brunaliðinu fræga. Þær Erna og Eva voru t.d. kallaðar ríkisraddirnar þar sem þær rödduðu nánast allt sem kom út í fjölda mörg ár, á gríðarlega mörgum hljómplötum, voru bakraddir í tónlistarþáttum í sjónvarpi og svo auðvitað í Söngvakeppni sjónvarpsins. Þær fóru líka nokkrum sinnum út sem bakraddir í sjálfa Eurovisionkeppnina. Í dag hafa þær báðar áhuga á andlegri líðan og meðferð, Erna menntaði sig í sálgæslu og vinnur meðal annars á Landspítalanum. Eva hefur nýlokið meistaranámi í því sem kallað er RIM, eða Regenerating Images in Memory, aðferð við hjálpa fólki meðal annars við takast á við erfiðar tilfinningar, minningar, áföll og vanlíðan.

Í matarspjalli dagsins sögðum við skilið við hollustuna og töluðum um nammi, sælgæti. Þetta átti vera spjall eingöngu um íslenskt nammi í þetta sinn, en það fór ekki alveg þannig. Sigurlaug Margrét hafði auðvitað sterkar skoðanir á þessu eins og öllu í matarspjallinu.

Tónlist í þættinum í dag:

Funheitur / Pláhnetan (Friðrik Sturluson og Stefán Hilmarsson)

Leiðarljós / Snörunar (Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson)

Fyrir utan gluggann minn / Snörurnar (Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

26. maí 2023

Aðgengilegt til

26. maí 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,