Mikið hefur verið fjallað um gervigreind undanfarið, og talsvert hefur borið á fréttum þar sem fólk hefur áhyggjur af þróuninni, því mannkyninu standi ýmis konar ógn af gervigreind og setja þurfi skýrar reglur. Til dæmis heyrðust dæmi um það í fréttum að fimmti hver nemandi í Noregi, á aldrinum 15-24 ára, noti gervigreind til að aðstoða sig í við heimavinnu. En við ætlum að fræðast í dag um mögulegar jákvæðar hliðar á notkun gervigreindar í skólum og hvernig hún getur nýst við kennslu. Tryggvi Thayer er doktor í samanburðarmenntunarfræðum, hann er einn af þeim sem kennir í námskeiði fyrir framhaldsskólakennara á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands og við fengum hann til að segja okkur betur frá því í dag.
Dýraathvörf fyrir heimilislaus dýr hérlendis eru full og sífellt fer fjölgandi tilvikum þar sem gæludýr eru skilin eftir á vergangi. Við töluðum við Hönnu í Kattholti, en hún er rekstrarstjóri Kattholts, og hún sagði okkur hverjar geta verið ástæðurnar fyrir því að dýr verða heimilislaus og hvað er hægt að gera.
Fjölskyldu og menningarhátíðin Allt í blóma í Hveragerði verður haldin næstu helgi og það verða tónleikar og alls kyns afþreying fyrir fjölskylduna og stjörnur eins og Bríet, Stefán Hilmarsson, Friðrik Dór, Stefanía Svavars og fleiri stíga á svið. Sigurgeir Skafti Flosason og Unnur Birna Bassadóttir eru ungt par sem hafa búið í Hveragerði síðustu ár og sett svip sinn á menningar- og tónlistarlífið þar, og reyndar víðar, og Skafti er framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þau komu bæði í þáttinn í dag og við ræddum um lífið fyrir austan fjall og svo auðvitað um hátíðina Allt í blóma.
Tónlist í þættinum í dag:
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðarson)
Jörð / Unnur Birna og Fjallabræður (Unnur Birna Bassadóttir og Bragi Valdimar Skúlason)
Gamla kisa / Diddú (Jóhann Helgason og Jakob Thorarensen)
Þegar þú ert hér / Stefán Hilmarsson og Sálgæslan (Sigurður Flosason)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR