Mannlegi þátturinn

Róbert Arnfinnsson, Ástarsögufélagið og póstkort frá Magnúsi

Í dag hefði stórleikarinn Róbert Arnfinnsson orðið 100 ára og í tilefni þess fengum við Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing í leikminjasafni Landsbókasafnsins, til þess koma til okkar en bókasafnið varðveitir einkaskjalasafn Róberts sem er stórmerkilegt og eitt af stærstu einkaskjalasöfnum safnsins. Sigríður rifjaði upp með okkur feril Róberts, en hann lék ríflega 200 hlutverk á leiksviði og ennþá fleiri í útvarpi og við fengum heyra stutt brot úr ferli hans úr uppsetningu Þjóðleikhússins á Grikkjanum Zorba frá árinu 1971 og svo heyrðum við hann syngja lagið Herra Sellófan úr söngleiknum Chicago, upptöku frá vetrinum 1984-85 úr Þjóðleikhúsinu.

Hið nýstofnaða Ástarsögufélag vill standa eflingu ástarsögunnar í sinni fjölbreyttustu mynd og koma til móts við þá fjölmörgu lesendur sem þrá lesa meira um ástina. Félagið verður með örástargjörning á Menningarnótt þar sem nokkrir meðlimir félagsins munu aðstoða gesti og gangandi á Óðinstorgi við skrifa ástarskilaboð. Brynja Sif Skúladóttir er formaður félagsins og við töluðum við hana í dag.

Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Þjóðhátíðin fór vel fram segir Magnús í póstkortinu þessu sinni, en finnst hann vera orðinn aðeins of gamall og of mikill morgunhani fyrir hátíð sem er haldin mestu fyrir og eftir miðnætti í þrjá daga. En hann hlakkar til haustsins þegar fer dimma því þá getur hann farið sinna einu áhugamáli sínu sem er stjörnuskoðun. Í seinni hluta póstkortsins fer hann í smá ferðalag með hlustendur um óravíddir geimsins.

Tónlist í þættinum:

Ég fann ást / KK (Kristján Kristjánsson)

Sellófan / Róbert Arnfinnsson (John Kander og Flosi Ólafsson)

Love me tender / Elvis Presley (George R. Poulton, Ken Darby, Vera Matson & Elvis Presley)

Love is in the air / Robin Williams og Cristine Baranski (Stephen Sondheim)

I Say A Little Prayer / Aretha Franklin (Burt Bacharach & Hal David)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

16. ágúst 2023

Aðgengilegt til

16. ágúst 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,