Mannlegi þátturinn

Rannsakar gömul hús, ráðskona Bakkabræðra og hreindýrasýning

Framhaldsskólakennarinn Arnór Bliki Hallmundsson hefur lengi rannsakað og skrifað um sögu gamalla húsa á Akureyri og í nágrenni og birtast skrif hans meðal annars inni á svæðismiðlinum akureyri.net. Undanfarið hefur Arnór Bliki unnið gerð bókar um hús og fólk á Eyrinni í samvinnu við Kristínu Aðalsteinsdóttur og mun bókin koma út innan tíðar. Við hittum Arnór Blika á Eiðsvellinum á Akureyri og ræddum bókina sem og áhuga hans á gömlum húsum.

Við kíktum í heimsókn í Safnahúsið á Egilsstöðum en þar er meðal annars Minjasafn Austurlands til húsa. Þar hittum við Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur sem sagði okkur frá einni af fastasýningu safnsins, sem fjallar um hreindýr.

Kristín Aðalheiður Símonardóttir rekur veitingastaðinn Gísli Eiríkur og Helgi á Dalvík og við komum við hjá henni á ferð okkar um Norðurland fyrir stuttu og spjölluðum við hana um reksturinn, ferðafólkið sem flykkist norður og stóra verkefnið í vetur sem var True Detective sem var allt umlykjandi á Dalvík.

Tónlistin í þættinum:

Lipurtá - Bubbi

Allt í góðu lagi - Móses Hightower

Bewitched, bothered and bewildered - Cher og Rod Stuart.

Moda Bo - Lura ásamt Cesaria Evora

Frumflutt

15. júní 2023

Aðgengilegt til

15. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,