Mannlegi þátturinn

Aflið á Akureyri,Leiklistarskóli Akureyrar og Markaðsstofa Norðurlands

Aflið eru samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis. Frá upphafi hefur Aflið vaxið þó nokkuð, árið 2011 voru viðtöl 685 og árið 2018 náðu viðtöl ákveðnum toppi en þá voru þau 1460 talsins. Starfandi ráðgjafar hjá Aflinu í dag eru fimm talsins og hún kom til okkar Erla Hrönn Hörpu Unnsteinsdóttir verkefnisstýra Aflsins.

Met var slegið í fjölda seldra gistinátta á Norðurlandi í júlí og ágúst skv. tölum frá Hagstofunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands og fjallað um á Akureyri.net. Það virðist sem sumartímabilið orðið lengra og Í júlí voru gistinætur til dæmis 60% fleiri en árið 2018 og í ágúst 145% fleiri en árið 2018. Halldór Óli Kjartansson verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands kom til okkar.

Við skruppum svo í heimsókn í kennslurými Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Þar geta börn á grunnskólaaldri sótt sér þjálfun í grunnatriðum leiklistar. Við hittum Jenný Láru Arnórsdóttur skólastjóra leiklistarskólans sem sagði okkur nánar frá starfseminni

Lögin í þættinum

Það er svo skrýtið/Vilhjálmur Vilhjálmsson(Magnús Eiríksson-Vilhjálmur Vilhjálmsson) Upptaka 1977

Gone gone Gone/Alison Krauss og Robert Plant(lag eftirEverly bræður,þá Phil og Don)

Von/Þorgrímur Jónsson og félagar(Þorgrímur Jónsson)

Í fylgsnum hjartans/Stefán Hilmarsson(Ástvaldur Traustason-Stefán Hilmarsson)

Frumflutt

10. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,