Mannlegi þátturinn

Gefum íslensku séns, viðlagahúsin og póstkort frá Magnúsi

Við fræddumst í dag um verkefnið Gefum íslensku séns, íslenskuvænt samfélag sem er á vegum Háskólaseturs Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Ísafjarðabæjar og Súðavíkurhrepps. Þetta verkefni hlaut viðurkenninguna Evrópumerkið núna í ár en verkefnið gengur út á gera fólk meðvitað um hvernig innflytjendur læra íslensku og samfélagið í heild til aðstoða fólk tileinka sér tungumálið. Við heyrðum í dag í Sædísi Maríu Jónatansdóttir, forstöðumanni Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Peter Weiss, forstöðumanni Háskólaseturs Vestfjarða og fengum þau til segja okkur betur frá þessu.

Guðmundur G Þórarinsson verkfræðingur var 34 ára gamall árið 1973 þegar hann stóð með risastórt verkefni í höndum. Það þurfti setja upp um 550 viðlagasjóðshús fyrir heimilislausa Vestmannaeyinga og það þurfti gerast hratt. Í ljósi þeirra stöðu sem komin er upp í Grindavík og þá húsnæðisneyð sem íbúar þess eru í, fengum við Guðmund til lýsa því hvernig Vestmanneyjaverkefnið gekk fyrir sig árið 1973.

Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Eins og heyrst hefur í fréttum þá skemmdist vatnsleiðslan til Vestmannaeyja síðastliðið föstudagskvöld og á henni eru tvö göt. Magnús segir í kortinu frá ótta eyjamanna við vatnsleysið, en sagt er þeir hafi óttast það meira en allar aðrar ógnir. Í seinni hluta póstkortsins segir hann frá grein um öldrun þar sem spáð er hækkandi lífaldri jarðarbúa en líkurnar eru mestar hjá hinum efnameiri því öldrunarlyfin og meðferðin verður dýr og verður líklegast ekki á færi hinna efnaminni.

Tónlist í þættinum í dag:

Dönsum í hríðinni / Fríða Hansen (Fríða Hansen)

Cecilia / Simon & Garfunkel (Paul Simon)

Þar sem fyrrum / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

22. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,