Mannlegi þátturinn

Barnaheill, búddismi og tónlist, gerendur stafræns ofbeldis

Barnaheill Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdastjóra samtakanna í Istanbul þar sem verið var leggja línurnar fyrir árið og þau verkefni sem samtökin ætla leggja á og hún sagði okkur frá því í viðtalinu.

Ástvaldur Zenki Traustason kom svo í þáttinn og talaði við okkur um heilsuna, Zenbúddisma og tónlist. Hann er með tónleika sem hann nefnir Stefnumót við lífið. Hann sagði okkur betur frá þessu.

lokum kom til okkar Dr. María Rún Bjarnadóttir, yfirmaður netöryggismála hjá ríkislögreglustjóra, en hún kynnti í gær rannsóknarniðurstöður frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð þar sem varpað var ljósi á gerendur í málum sem snúa stafrænu kynferðisofbeldi. Gerendur voru kortlagðir út frá aldri, kyni og tengslum þeirra við þolendur og svo voru hvatarnir á bak við brotin skoðuð. María Rún sagði okkur frá helstu niðurstöðunum í þættinum.

Tónlist í þættinum í dag:

Borð fyrir tvo / Hjálmar (Bragi Valdimar Skúlason)

Faðmlag / Kristjana Stefánsdóttir ( Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson)

Gleym mér ei / Lay Low (Bubbi Morthens)

Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

20. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,