Mannlegi þátturinn

Ásta frá Yogavin, örsögur um Óróa og póstkort frá Magnúsi

Við getum lært vingast við taugakerfið í amstri dagsins og þurfum kannski sérstaklega á því halda í aðdraganda jólanna. Mjúkar yogahreyfingar, öndun, hugleiðsla og tónheilun geta hjálpað og við forvitnuðumst um hvernig við getum komið betra jafnvægi á taugakerfið með verkfærum sem hjálpa okkur hafa betri stjórn á viðbrögðum og gjörðum. Ásta Arnardóttir frá Yogavin kom í heimsókn og benti á góð ráð.

Meistaranemar í ritlist við Háskóla Íslands hafa undanfarin ár verið í samstarfi við Rás 1 í desember vegna útgáfu Jólabókar Blekfjelagsins út en Blekfjelagið er nemendafélag Ritlistar. Þetta er í tólfta sinn sem þetta er gert, fyrst voru sögurnar 100 orð en svo fækkar orðunum með hverju árinu og eiga sögurnar því vera nákvæmlega 89 orð hver og þemað í ár er Órói. Við heyrðum höfundana sjálfa lesa annan hluta þessara örsagna í þættinum í dag. Höfundarnir í dag voru: Hrönn Blöndal Birgisdóttir, Jóna Valborg Árnadóttir, Ásta H. Ólafsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Berglind Erna Tryggvadóttir, Andri Freyr Sigurpálsson, Vala Hauksdóttir, Regn Sólmundur Evu, Unnar Ingi Sæmundarson og Aron Martin.

Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag, hann hefur verið á tveggja vikna ferðalagi um þrjár stórborgir Þýskalands. Hann segir frá Dresden sem er tvískipt á bökkum Saxelfurs, gamli bærinn sunnan megin og nýji norðan megin. Berlín er líka sérkennileg með sín þrjú sentrum og með tvennt af öllu eftir borginni var skipt í austur og vestur eftir heimsstyrjöldina. Magnús er núna staddur í Hamborg, Sankti Pauli hverfinu þar sem Bítlarnir urðu þeirri hljómsveit sem átti eftir sigra heiminn. Hann rak slóðina þeirra og segir frá henni í póstkorti dagsins.

Tónlist í þættinum í dag:

Hún hring minn ber / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Hljómsveit Magnúsar Ingimarsson (Erlent lag, texti Baldur Pálmason)

Anda Inn / Heimilstónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir)

One Of These Things First / Nick Drake (Nick Drake)

Ein Bischen Frieden / Nicole (Ralph Siegel & Bernd Meinunger)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

6. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,