Mannlegi þátturinn

Tengslavandi, Heilsubrú og umhverfissálfræði

Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, MA og nemi í fjölskylduráðgjöf kemur til okkar í dag og ætlar fræða okkur um Tengslavandamál hjá leik- og grunnskólabörnum sem er vandi alls nærumhverfis barnsins. Mikilvægasta grunnþörf barns er tengjast tilfinningaböndum við foreldra og með því þörfum sínum fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt án skilyrða. Jóhanna kom í þáttinn og fræddi okkur betur um þetta og sagði meðal annars enginn getur tekist á við þennan vanda einn, ekki foreldrarnir einir og ekki skólinn einn.

Við fjölluðum um Heilsubrú Heilsugæslunnar fyrir um það bil ári síðan en Heilsubrú er miðlæg þjónustueining hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er þjónusta sem styður og bætir við þjónustu heilsugæslustöðva og þjónustan hefur verið í mótun og ýmislegt hefur bæst við á undanförnum mánuðum sem við fræddumst um í þættinum í dag. Kvenheilsa, andlega heilsa, sykursýki og sérhæfð mæðravernd er meðal þess sem áhersla er lögð á. Sólrún Ólína Sigurðardóttir fagstjóri komi í þáttinn.

Svo lokum fræddumst við um áhrif umhverfis innandyra á líðan og heilsu fólks. Flestir verja stórum hluta tíma síns innandyra. Umhverfi innandyra er samspil ólíkra þátta og hefur mismunandi áhrif á fólk. Þannig hefur umhverfið heima önnur áhrif en vinnuumhverfið, það er ólík upplifun vera í skóla eða á sjúkrahúsi, í verlun eða leikhúsi. Páll Líndal doktor í umhverfissálfræði kom í þáttinn og sagði frá.

Tónlist í þættinum:

Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason)

Arietta / Dag Arnesen Trio (Edward Grieg)

O Happy day / Edward Hawkins singers (Edwin Hawkins)

Dont try to fool me / Jóhann G Jóhannsson(Jóhann G. Jóhannsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

29. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,