• 00:05:48Álfrún Helga Örnólfsd. - föstudagsgestur
  • 00:22:48Álfrún Helga - seinni hluti
  • 00:36:18Matarspjallið - eftirréttir framhaldsspjall

Mannlegi þátturinn

Álfrún Helga föstudagsgestur og eftirréttaspjall

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan, sviðshöfundurinn og leikstjórinn Álfrún Helga Örnólfsdóttir. Hún hóf mjög ung leika, bæði á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar og þegar hún fór í leiklistarnám til London þá var hún þegar orðin reynslumikill leikari. Hún hefur leikið víða eftir útskrift en ferillinn hennar hefur tekið áhugaverðar beygjur undanfarin ár þar sem leikstjórnin og kvikmyndagerðin hafa tekið sífellt meira pláss í hennar lífi. Eins og hún orðar það sjálf þá gerðist það nánast óvart hún fór leikstýra í leikhúsi og eru æfinga hafnar á þriðja leikritinu í hennar leikstjórn, söngleikur í Borgarleikhúsinu, og svo var það líka hennar sögn nánast óvart hún leikstýrði kvikmynd sem hefur fengið góðar viðtökur á kvikmyndahátíðum út um allan heim og er hún undirbúa sína aðra kvikmynd. Við fórum auðvitað með henni aftur í tímann í æskuna og uppvöxtinn og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.

Í matarspjalli dagsins héldum áfram spjalla um eftirrétti. Í síðustu viku vorum við í eftirréttum með nostalgísku ívafi, niðursoðnum ávöxtum og ís í sneiðum, en í dag fórum við um víðan völl og það segir sig eiginlega sjálfta við sögu kom talsvert magn af sykri.

Tónlist í þættinum í dag:

Hagavagninn / Haukur Morthens (Jónas Jónasson og Ragnar Jóhannesson)

Tick Tock / Aldous Harding (Hannah Sian Topp a.k.a. Aldous Harding)

Forgiven / Alanis Morissette (Alanis Morissette & Glen Ballard)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

17. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,