Mannlegi þátturinn

Fjármál við starfslok, Hjartans mál og krónískar bólgur

Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur og sérfræðingur í lífeyrismálum, stýrir námskeiðinu Á tímamótum - fjármál við starfslok hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Markmið námskeiðsins er aðstoða fólk við undirbúa sig fyrir starfslok og þær breytingar sem verða eftir störfum lýkur. Það er ýmislegt sem hafa ber í huga og mikilvægt er skoða hvaða möguleikar eru í boði og hvað ber varast. Lilja Lind sagði okkur meira frá þessu í þættinum.

Hjartans mál er heiti á heildstæðu verki sem samanstendur af 12 lögum, sérstök fjölskylduplata þar sem áhersla er lögð á hvíld, tilfinningar og tengsl. Boðskapurinn er fallegur og uppbyggjandi og við forvitnuðumst nánar um þetta verkefni hjá Hólmfríði Samúelsdóttur í dag.

Í Heilsuspjallinu talaði Jóhanna Vilhjálms um bólgur sem eru undirliggjandi í öllum helstu sjúkdómunum, um bólguminnkandi og bólguaukandi mat og krónískar bólgur. Hvað veldur og hvernig spilar fæðan okkar í þetta?

Tónlist í þættinum í dag:

Út á stoppustöð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)

Your Long Journey / Allison Krauss & Robert Plant (Arthel Lane Watson & Rosalie Watson)

Pínu eins og... / Hófí Samúels og TÖFRAR VERÐA TIL (Hólmfríður Samúelsdóttir)

Latin snowfall / Henry Mancini and his orchestra (Henry Mancini)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

7. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,