• 00:06:56Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis
  • 00:21:51Listahjónin Snorri og Kristjana
  • 00:36:55Addi Sím undirbýr brúðkaupið sitt

Mannlegi þátturinn

Brúðkaupsveisla framundan, listahjón og velferðaraðstoð í Eyjafirði

Á Eyjafjarðarsvæðinu er starfrækt velferðaraðstoð sem rekin er með samvinnu nokkurra hjálparsamtaka. Það eru Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Rauði krossinn við Eyjafjörð. Aðstoðin var þó fyrst aðeins bundin við jólin. Það var svo jólin 2022 metfjöldi umsókna barst og var þá starfsemin útvíkkuð enn frekar. Í kjölfarið var stofnaður Velferðarsjóður Eyjafjarðar og veitir sjóður velferðaraðstoð á ársgrundvelli. Sigríður M. Jóhannsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd hefur verið formaður sjóðsins frá stofnun hans. Hún var gestur okkar hér í Mannlega þættinum og segði betur frá starfsemi sjóðsins og hvernig hún skynjar þörfina fyrir aðstoð hér á Eyjafjarðarsvæðinu.

Listahjónin Snorri Guðvarðarson og Kristjana Agnarsdóttir vinna við það gera upp gamlar friðaðar kirkjur og hús og ferðast víða um land í þeim tilgangi. Það eru mörg smáatriði sem þarf huga og heimildavinna til finna út hvernig húsin litu út upprunalega. Við hittum þau hjónin í Minjasafnskirkjunni hér á Akureyri og tókum þau tali.

Arnar Símonarson eða Addi Sím eins og hann er oftast kallaður er undirbúa brúðkaupið sitt sem fer fram 17. júní og hann er þessa dagana sauma brúðarfötin sem þeir munu klæðast þann dag og einnig er hann búin prjóna sokkana, geri aðrir betur. Og ekki nóg með allan saumaskapinn þá bakar hann líka kökurnar fyrir veisluna. Það er sum allt heimagert frá a til ö. Addi kom keyrandi frá Dalvík og sagði okkur allt um brúðkaupsundirbúninginn.

Frumflutt

7. júní 2023

Aðgengilegt til

6. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,