Mannlegi þátturinn

Björgvin Franz föstudagsgestur og áfram um samlokusalöt

Björgvin Franz Gíslason leikari var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hann hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann um Stundina okkar í mörg ár, hann hefur auðvitað leikið í fjölda leiksýninga og í kvikmyndum og sjónvarpi, hann veislustýrir, syngur lögin hans Ragga Bjarna á öldrunarheimilum og síðustu ár hefur hann leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru hjá Leikfélagi Akureyrar. Í vetur hefur hann farið með stærsta karlhlutverkið í söngleiknum Chicago fyrir norðan og fékk frábæra dóma fyrir. Við ræddum við Björgvin Franz um lífið og tilveruna, ADHD, Jón Gnarr, Björn Hlyn, Ragga Bjarna og fleira og fleira.

Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað í þættinum. Í dag tókum við aftur upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram tala um samlokusalöt og einnig komu við sögu kartöflur og rauðmagi.

Tónlist í þættinum í dag:

Ég bið þig forláts / Raggi Bjarna (J.South og Iðunn Steinsdóttir)

A ban I bin /Izhar, Cohen og Alpha Beta (Eurovision lag Ísraela 1978)

OK / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Skuggi og Erik Kvick)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

28. apríl 2023

Aðgengilegt til

28. apríl 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,