• 00:09:39Margrét Júlía - Hjartarætur
  • 00:40:55Veðurspjallið - Elín Björk Jónasdóttir

Mannlegi þátturinn

Hjartarætur Margrétar Júlíu Rafnsdóttur, Elín Björk um veður

Fyrir síðustu jól kom út bók eftir Margréti Júlíu Rafnsdóttur, Hjartarætur sagan af pabba. Þessi bók fór ekki hátt í jólabókaflóðinu og ekki margir sem veittu henni athygli en hún er tileinkuð öllum þeim sem bæta heiminn með kærleika og umhyggju fyrir fólki og umhverfi. Margrét Júlía lýsir í bókinni kærleiksríku uppeldi sínu og hvernig saga fjölskyldunnar hverfist um Týsgötu 8 við Óðinstorg í Reykjavík. Rafn Júlíusson er miðpunktur bókarinnar og Margrét segir hann hafi verið einstaklega kærleiksríkur faðir og fjölskyldan hans hjartahlý. En það var ekki allt rætt í þá daga eins og kemur fram í bókinni. Við hittum Margréti á Óðinstorgi og röbbuðum við hana um sögu hússins og fjölskyldunnar.

Svo er það veðrið og ef einhversstaðar skipast veður skjótt í lofti, þá er það á Íslandi. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom til okkar í veðurspjallið í dag.

Tónlist í þættin dagsins:

Björgvin Halldórsson - Vesturgata.

Þórunn Lárusdóttir Leikkona ; RKÍ - Afmælisdiktur.

Spilverk þjóðanna - Veðurglöggur.

Frumflutt

5. sept. 2023

Aðgengilegt til

4. sept. 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,