Mannlegi þátturinn

Póstkort frá Magnúsi, Baldvin í Flugkaffi og Sumarlestur á Bókasöfnum

Í þessu póstkorti sagði Magnús frá nokkrum áhugamálum sínum sem hann hefur verið sinna eftir hann gerðist pensjónisti. Hann sagði frá dansiðkun sinni, sem hann stundar í laumi, aleinn. Hann sagði líka frá hljóðfærunum sínum og músíkupptökum, sem taka heilmikinn tíma á hverjum degi. Tungumálanámið er líka alltaf hluti af hverjum degi og er það þýska sem hefur mesta ástundun þetta sumarið.

Við litum við á flugstöðinni á Akureyri en þar eru miklar breytingar fram undan, bæði utanhúss en ekki síst innan úss. Í kaffiteríunni hefur hann Baldvin Sigurðsson veitingamaður staðið vaktina í ein 20 ár, en er komið tímamótum í hans lífi enda er síðasti dagurinn hans á morgun. Við settumst niður með Baldvini í Flugkaffi og spjölluðum um lífið og tilveruna.

Sumarlestur er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 3.-5. bekk. Börnin koma á bókasafnið einu sinni í viku í 4 vikur þar sem þau skemmtilega fræðslu og taka þátt í lestrarhvetjandi uppákomum enda markmiðið viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnunum. Sumarlesturinn á bókasafni Árborgar á Selfossi hófst 7. júní og verður alla daga miðvikudaga mánaðarins kl. 13:00. Við heyrum í Heiðrúnu Dóru Eyvindardóttur sem er bókasafnsstýra þar á bæ.

Tónlistin í þættinum:

Í kjallaranum - Óðinn Valdimarsson (Jón Sigurðsson)

From the Start - Laufey

You turn me on, I'm a Radio - Joni Michell

Du elskling er som en ros - Kristian Rusbjerg

Frumflutt

14. júní 2023

Aðgengilegt til

14. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,