Today on RÚV English Radio, some more bite-sized Icelandic language learning, in this week's episode of Auðskilið.
Each week, as part of our regular programming, RÚV English Radio hopes to assist with the learning of Icelandic - https://www.ruv.is/english/2026-01-19-learn-icelandic-with-ruv-english-radio-463826
In weekly shows, called Auðskilið - which means "easily understood" - you can follow along with a recent news story, written and read in a simple form of Icelandic.
Today, the recent municipal elections in Iceland.
Follow along with the text here:
Síðasta laugardag kusu íbúar á Íslandi í sveitarstjórnarkosningum.
Þeir völdu nýja fulltrúa í sveitarstjórnir um allt land.
Kjörseðlum var skilað á 293 kjörstöðum.
453 fulltrúar voru alls kosnir.
Þátttakan var meiri en í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Það þýðir að fleiri sem máttu kjósa ákváðu að taka þátt.
Sum sveitarfélög eru mjög lítil, með aðeins um 50 til 100 kjósendur á kjörskrá.
Langstærsta sveitarfélagið er Reykjavík.
Þar eru um 110 þúsund kjósendur.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Reykjavík.
Hann mun þess vegna leiða í borgarstjórn.
Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem flokkurinn leiðir í borginni.
Viðræður eru í gangi víða um landið á milli allra flokka sem náðu inn fulltrúum.
Samkomulag verður gert í hverju sveitarfélagi á milli flokkanna, til að mynda meirihluta.
Þessir meirihlutar sitja síðan í sveitarstjórn ásamt minnihlutanum.
Á Íslandi, eins og í mörgum öðrum löndum, geta íbúar sem ekki eru ríkisborgarar kosið í sveitarstjórnarkosningum.
RÚV English Radio is heard around the world and in Iceland, celebrating Icelandic culture, art, music, language, and more.
Let us know where you're listening - in Iceland, or around the world - we'd love to give you a mention! Email [email protected]
Find this episode and previous shows & podcasts here, Spotify, Apple, and all podcast places. Find us on Facebook too.
RÚV English Radio, from Iceland's national broadcasting service, RÚV.