Við byrjuðum í Mosfellsbænum í tilefni af væntanlegum sveitarstjórnarkosningum. Við fórum í heimsókn til Hönnu Símonardóttur, sem hefur verið lýst sem ofurfótboltamamma og athafnakona en hún hefur verið ötull sjálfboðaliði í tugi ára og unnið gott og mikilvægt starf fyrir Aftureldingu. Það eru fáir sem þekkja samfélagið í Mosfellsbæ betur en hún. Síðan heyrðum við í Mosfellingum á förnum vegi - fengum að vita hvað það er sem brennur á þeim fyrir kosningarnar.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt aðgerðir sem ætlað er að styrkja stöðu leigjenda og bæta réttarstöðu þeirra á leigumarkaði. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér að banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu. Ragnar Þór kom til okkar.
Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis ætlaði að vera með Íslandsmeistaramótið í skeggvexti á laugardaginn en því hefur nú verið frestað fram á haust vegna dræmrar þátttöku. Jón Baldur Bogason, er yfirumsjónarmaður Skeggfjelag Reykjavíkur og nágrennis. Hann ræddi við okkur um keppnina og skeggtískuna í dag almennt.
Í Spánarspjalli gærdagsins við Jóhann Hlíðar kom fram að á hverju ári koma út um 90.000 nýir bókatitlar á Spáni sem telst harla gott eða 80 nýjar bækur á dag, Þrátt fyrir þetta mikla magn selst um helmingur þeirra lítið eða ekkert. Er þetta merki um harða samkeppni ? Er verið að gefa út of margar bækur eða eru bókaforlögin að leggja of mikla áherslu á magn en ekki gæði ? Og hvernig er þessu háttað hér á landi ? Við heyrðum í Ásmundi Helgasyni, bókaútgefanda hjá Drápu og fengum hans sýn á stöðuna.
Málefni Elliðaánna eru í brennidepli en annað kvöld, fimmtudag, verður haldinn opinn fundur þar sem frambjóðendur í borginni verða spurðir út í verndun svæðisins og framtíð þess. Áhyggjur snúa meðal annars að aukinni uppbyggingu og fjölgun ferðamanna í Elliðaárdalnum – og hvort það samræmist verndun einnar mikilvægustu náttúruperlu borgarinnar. Við ræddum þetta við Hrannar Pétursson varaformann stjórnar SVFR og Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðing.
Unnar kjötvörur verða ekki á boðstólum í leik- og grunnskólum Reykjavíkur samkvæmt nýrri matarstefnu sem samþykkt var á borgarstjórnarfundi í vikunni. Stefnunni er ætlað að tryggja aðgengi að hollum mat óháð efnahag. Markmiðið er að bæta mataræði barna – en um leið vakna spurningar um næringu, áhrif og hvort þetta sé raunhæft í framkvæmd. Við ræddum þetta við Annu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands.