Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna
Í þessum síðasta þætti Samfélagsins veltum við fyrir okkur snúbúum – einstaklingum sem flytja til útlanda og snúa svo aftur. Karítas Hrundar Pálsdóttir, doktor í ritlist, hefur rannsakað…
Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum.
Ársfundur samtakanna fór fram á dögunum. Við ræðum við Nótt Thorberg, forstöðumann Grænvangs, um getu atvinnulífsins til að leggja sitt af mörkum í loftslagsmálum, helstu hindranir og sóknarfæri og samstarfið við stjórnvöld.
Páll Líndal veltir í pistli dagsins fyrir sér staðaranda, staðleysu og Disney-væðingu og setur í samhengi við fyrirhugaða uppbyggingu gamla Slippssvæðisins í Vesturbugt í Reykjavík.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]