Samfélagið

Áhrif kvennaverkfalls, greining strokulaxa, málfar og kvennafrí 1975

Samfélagið verður áfram með hugann við kvennaverkfallið og áhrif þess á Samfélagið og lykilstarfsemi. Við ræðum við bæjarstjóra, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum, formann Flugfreyjufélagsins og mannauðsstjóra Ísavía.

Hafró og Matís hafa undanfarið staðið í ströngu við erfðagreina meinta strokulaxa, magnið er svona á við tvær þrjár meðalfrystikistur, og þau eru rúmlega hálfnuð með verkið. Þetta eru tímafrekar rannsóknir sem vonandi segja okkur ýmislegt. Við ræðum þessa vinnu, áhættu af fiskeldi og visst landnámseðli laxa við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatnssviðs hjá Hafrannsóknastofnun.

Málfarsmínúta.

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV. Rifjar upp dagskrá fyrsta Kvennafrídagsins en dagskráin var metnaðarfull og henni var útvarpað á þessum degi fyrir 48 árum.

Frumflutt

23. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,