Samfélagið

Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris

Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar til almennings halda því á lífi. Jón Trausti Sigurðarson, útgefandi, settist niður með okkur og fór yfir reksturinn, söguna og stöðu íslenskrar fjölmiðlaflóru.

Við förum líka í heimsókn í nýtt húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Þar tók á móti okkur Eva Björg Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá félaginu og sagði frá starfseminni.

Í lok þáttar rifjum við upp ársgamalt viðtal við Brynjar Karl Óttarsson, sögukennara við Menntaskólann á Akureyri. Hann var þá búinn rannsaka gamlar bækur og skjöl bæði í kjallara Amtsbókasafnsin á Akureyri og í hirslum Menntaskólans - og þessa yfirlega skilaði nokkrum forvitnilegum uppgötvunum sem tengjast sögu ensku merkiskonunnar May Morris.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir.

Birt

25. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Þættir

,