Umræðan um bólusetningar, týndu börnin og brislingur finnst við Ísland
Vilhjálmur Árnason prófessor í heimsspeki við Háskóla Íslands spjallar um það á hvaða hátt hann telur æskilegt að tækla umræðuna um bólusetningar, en hann sendi frá sér grein sem birtist í Kjarnanum þar sem hann varar við sleggjudómum og staðhæfingum opinberra aðila sem kynda undir reiði fólks í garð meðborgara sinna.
Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður: 158 beiðnir bárust til lögreglunnar á síðasta ári vegna týndra ungmenna sem er töluvert færra en síðustu árin - Guðmundur hefur sinnt því verkefni að leita þeirra og ræddi um hvað valdi fækkuninni og hvernig vandinn sem þessi börn glíma við hefur breyst.
Jón Sólmundsson hjá Hafrannsóknarstofnun: Það telst alltaf til tíðinda þegar nýjar fiskitegundir gera sig heimakomnar við Íslandsstrendur, sérstaklega þegar þetta eru góðir matfiskar og líklegir til nytja - einn slíkur, Brislingur svokallaður hefur verið að finnast í meira mæli síðustu ár - það hefur gert fiskifræðinga afar spennta.
Páll Líndal umhverfissálfræðingur er svo með pistil.
Birt
25. jan. 2022
Aðgengilegt til
26. jan. 2023
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál.
Umsjón: Þórhildur Ólafsdóttir og Guðmundur Pálsson.