Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við kynntum okkur í þættinum í dag endurnýtingu á fötum og gömlum efnum, en Sigríður Tryggvadóttir saumakona úr Kópavoginum sérhæfir sig í einmitt því. Eftir að hún sá heimildarmynd um fatasóun og umhverfismengun textíliðnaðarins ákvað hún að sérhæfa sig í endurnýtingu á fatnaði og gömlum textíl. Hún vill sem sagt koma þeim hugsunarhætti á framfæri, því viðhorfi sem hún ólstu upp við, að nýta það sem við eigum í stað þess að henda burt. Sigríður sagði okkur meira frá þessu og námskeiðum í fatabreytingum sem hún er með.
Og talandi um föt, við veltum líka fyrir okkur litum í klæðnaði með Heiðari Jónssyni og hvað litagreining er. Af hverju velja svona margir að klæðast t.d. svörtu og hvað segir litavalið um okkur? Og erum við jafnvel búin að vera í röngum litum alla ævi, eitthvað sem fer okkur bara alls ekki? Heiðar gaf út bókina Litgreining og stíll fyrir nokkrum árum og þekkir vel til í þessum fræðum eins og fram kom í spjallinu við hann.
Við fengum fyrirspurn frá hlustanda sem bað okkur um að komast að því af hverju það eru ekki bílbelti í strætó. Við hringdum því í Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó bs. og fengum hann til að svara þessu og spurðum hann líka út í gæludýrin og strætó, hvernig þau mál hafa þróast eftir að það voru gerðar tilraunir með að leyfa það utan helstu anna tíma.
Tónlist í þættinum í dag:
Kókos og engifer / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)
Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson)
Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (höfundur ókunnur, Þorsteinn Eggertsson)
Gold laces / Júníus Meyvant (Unnar Gísli Sigurmundsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.