Morgunútvarpið

18. des.-Grindavík, kjaramál, deilihagkerfi, Alþingi, stafrænt áreiti

eru liðnar rúmar fimm vikur síðan Grindvíkingar þurftu rýma heimili sín. Fólk hefur komið sér fyrir hér og þar við mismunandi aðstæður og enn er óljóst hvenær fólk getur snúið aftur heim. Hilmar Gunnarsson er einn þeirra sem flúði bæinn og hann er ósáttur við stöðu mála, segir upplýsingagjöf litla og hann sitji upp með borga bæði húsaleigu og húsnæðislán sem hann er með hjá lífeyrissjóði. Við ræddum við Hilmar.

Framkvæmdastjóri SA gagnrýndi um helgina ríkissáttasemjari hafi í raun engar leiðir til þess framfylgja þeirri launastefnu sem mörkuð hefur verið í samningum á almennum vinnumarkaði, ríkissáttasemjari í raun valdlaus á Íslandi og það birtist meðal annars í agaleysi hagstjórnarinnar. Þá sagðist hún vona yfirstandandi skæruverkföll örfárra einstaklinga verði til þess aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld eigi opið samtal um hvernig megi bæta vinnumarkaðslíkanið og breyta hlutverki gestgjafans í Karphúsinu. Við ræddum málið við Láru V. Júlíusdóttur, lögmann og sérfræðing í vinnurétti.

Við töluðum um deilihagkerfið sem hefur verið ryðja sér til rúms undanfarin ár og aldrei meira en eftir Covid. Til okkar kom Harpa Magnúsdóttir stofnandi Hoobla sem sagði okkur meira af tækifærum á þessu sviði, hvernig fyrirtæki eins og Hoobla virkar og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér deilihagkerfið t.d. í leit erlendum sérfræðingum sem hugsanlega eru þegar við störf hér á landi.

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, var gestur okkar. Alþingi er komið í jólafrí og við gerðum upp þingveturinn og horfðum til næsta árs hvað varðar stjórnmálin.

Við tókum okkar vikulega sportspjall með Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttamanni þar sem handbolti og kraftlyftingar voru til umræðu.

Danski barna- og menntamálaráðherrann Mattias Tesfaye bað dönsk börn afsökunar í síðustu viku á þau hafi verið notuð sem stafræn tilraunadýr í mörg ár og þau hafi verið rænd hæfileikanum kafa á dýptina, einbeita sér námsefni án truflunar frá símum, spjaldtölvum og samfélagsöppum. Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands, vakti athygli á ólíkum viðbrögðum danskra og íslenskra stjórnvalda og við ræddum málið við hann.

Tónlist:

Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur - Erta þú jólasveinn?

Iceguys - Þessi týpísku jól.

Sting og Melody Gardot - Little something.

Baggalútur - Beint upp í Breiðholt.

Addison Villa - Skál fyrir Vésteini.

Willie Nelson - Blue Christmas.

Frumflutt

18. des. 2023

Aðgengilegt til

17. des. 2024
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,