Morgunútvarpið

Listir og velferð, Leifsstöð, Landskjörstjórn, maurar og Rússland

Ekki er seinna vænna en fara huga námi næsta vetur ef stefnan er tekin á frekara nám. Eins og fram hefur komið í fréttum þá hafa sumir skólar á háskólastigi fellt niður skólagjöld frá og með næstu önn og því ætti vera auðveldara finna sér nám við hæfi. Við fengum til okkar Kristínu Valsdóttur, deildarforseta listkennsludeildar Listaháskólans, til ræða þennan breytta veruleika fyrir nemendur en Kristín ætlar líka segja okkur af nýrri deild við skólann sem heitir Listir og velferð og býður uppá Meistaranám

Forsvarsmenn Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, eru bjartsýnir fyrir komandi sumri og segja fram undan eitt stærsta sumarið á vellinum. Spár gera ráð fyrir 7,2% aukning farþega á milli ára. Þetta rímar illa við það sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa sagt en Jó­hann­es Þór Skúla­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferðaþjón­ust­unn­ar, seg­ir út­lit fyr­ir spá um fjölg­un ferðamanna á þessu ári muni ekki raun­ger­ast. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, kom til ræða þessi mál og önnur sem tengjast starfssemi flugvallarins.

Úrskurðarnefnd kosningamála ógilti í gær ákvörðun Landskjörstjórnar veita Viktori Traustasyni ekki sama frest og öðrum frambjóðendum til embættis forseta Íslands til safna tilætluðum fjölda undirskrifta. Hvenær er undirskrift gild og hvenær ekki og hvernig eru þessar ákvarðanir teknar? Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar leit við hjá okkur í spjall um málið.

Maurar eru stórkostleg dýr, þau eru félagsverur og byggja maurabú, þar sem allar systurnar hjálpast við rekstur og búa til næstu kynslóð. Það sem fólki finnst kannski ekki alveg jafn stórkostlegt er litlu lífseigu verurnar virðast hafa komið sér vel fyrir hér á landi og eru hvergi á leið héðan í bráð. Við ræddum maura og mauradaginn við Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði og Ragnhildi Guðmundsdóttur sérfræðing hjá náttúruminjasafni íslands.

Íslandsdeild Amnesty International stendur fyrir Rússlandsherferð þar sem athygli er vakin á sífellt þverrandi tjáningarfrelsi í Rússlandi. Það hefur lengi verið takmarkað en staðan hefur hratt versnað eftir innrás Rússa í Úkraínu. Til vekja athygli á herferðinni stendur Amnesty fyrir sýningu heimildarmyndarinnar Soviet Barbara í BíóParadís á föstudag. Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Amnesty kom ásamt Guðna Tómassyni sem er framleiðandi myndarinnar.

Lagalisti:

Kaleo - Lonely Cowboy

The Stranglers - Skin Deep

Prince - I wanna be your lover

Kiriyama Family - Disaster

Todmobile - Pöddulagið

David Bowie - Ashes to ashes

Glass Animals - Heat Waves

Stephen Sanchez - High

Frumflutt

2. maí 2024

Aðgengilegt til

2. maí 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,