Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Allir með flensu, vikumatseðillinn og háorkuagnir

Inflúensufaraldur gengur yfir hjá landanum. Við fengum Valtý Stefánsson Thors yfirlækni barnalækninga hjá Barnaspítala Hringsins til að fara yfir stöðuna.

Í fréttum um helgina var sagt frá því að Airbus hafi kyrrsett þotur af gerðinni A320 vegna bilunar í tölvukerfi vélanna sem rekja mætti til háorkuagna frá sólinni. Sævar Helgi mætti með nokkra punkta úr himinhvolfinu.

Hvað á að vera í matinn í vikunni? Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir vinnur við að lóðsa ferðamenn um íslenska veitingastaði og þekkir góðan mat þegar hún bragðar hann. Hún sagði okkur hvað í ósköpunum við eigum að borða.

Stelpurnar okkar í íslenska handboltalandsliðinu eru komnar í milliriðil á HM í handbolta eftir frækinn 14 marka sigur á Úrúgvæ í gær. Ísland mætir Svartfjallalandi, Spáni og Færeyjum í milliriðlinum. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður var í beinni frá Þýskalandi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,