• 00:15:24Djammið á Krít
  • 00:26:21Jóhannes Haukur er Fisto
  • 00:49:02Fréttir vikunnar að norðan

Morgunútvarpið

Jóhannes Haukur er Fisto,700 útskriftanemar á Krít,fréttir vikunnar og Jólagarðurinn 30 ára

Í byrjun vikunnar fjölluðum við um þúsund ís­lensk ung­menni mun leggja undir sig eyjuna Krít í byrjun júní. Rúmlega 700 útskriftarnemar dvelja þar saman á risavöxnu hóteli og stemningin er eflaust í algleymingi. Við ætlum hringja út og kanna hvernig gengur til róa foreldra og þjóðina alla. Þórhildur Lilja Hafsteinsdóttir, forseti Keðjunnar - nemendafélags Kvennaskólans í Reykjavík, var á línunni.

Jólagarðurinn í Eyjafjarðarsveit verður 30 ára á sunnudaginn en garðurinn er vinsæll áningarstaður allt árið um kring. Hvernig gengur halda úti jólastemnignu í 30 ár? Í vikunni bárust líka fréttir af því Jólagarðurinn fái hús BSO Bifreiðastöðvar Oddeyrar afhent án endurgjalds en flytja þarf húsið frá Strandgötunni á Akureyri í júní. Benedikt Ingi Grétarsson kom til okkar í spjall.

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk Fisto í stórmyndinni Masters of the Universe, sem fjallar um ævintýri vöðvatröllsins He-Man. He-Man naut mikilla vinsælda á níunda áratugnum, bæði sem leikföng og teiknimyndaþættir. Jóhannes Haukur lék sér með He-Man-leikföng í æsku og það hefur því eflaust verið súrealísk upplifun leika í kvikmynd um hetjuna. Við fengum hann til okkar í spjall.

Við fórum yfir þessa risavöxnu fréttaviku í beinni útsendingu frá Akureyri og fengum til okkar söngvarann ástsæla Magna Ásgeirsson og Hildu Jönu Gísladóttur, samskiptastjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

Birt

29. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,