Morgunútvarpið

Almyrkvinn,Ásdís Rán,vegirnir á Austurlandi og EM í frjálsum

Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Vestfjörðum, stóð í ströngu í gær en fólk streymdi til fylgjast með almyrkvanum. Hann var á línunni og fór yfir með okkur hvernig allt gekk fyrir sig.

Íbúafjöldi Snæfellsbæjar margfaldaðist þegar almyrkvinn nálgaðist. Við heyrðum í Kristni Jónassyni, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, og könnuðum hvernig var búa í stórborg um stund.

Í gær heyrðum við í Auðdísi Tinnu Hallgrímsdóttur, húsfreyju á Hallfreðarstöðum 1 í Hróarstungu, sem var á leiðinni með bílinn í hjólastillingu vegna þess ástandið á Hróarstunguvegi er slæmt og hefur alltaf verið. Loftur Þór Jónsson er svæðisstjóri Vegagerðarinnar fyrir Austan og við spurðum hann út í málið í Morgunútvarpinu.

Ísdrottningin Ásdís Rán átti afmæli í gær og stendur í ströngu í Búlgaríu. Hún hefur sett á fót vefsíðu, einskonar umboðsskrifstofu á vefnum, og býður búlgörskum og íslenskum fyrirsætum á skrá sig. Hún var á línunni.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson er staddur á EM í frjálsum í Bretlandi. Hann var á línunni og fór yfir það helst.

Birt

13. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,