Morgunútvarpið

Jazz á Jómfrúnni, Samhjálp, Stefán Hilmarsson sextugur og fréttir vikunnar með Chess After Dark

Í 30 ár hefur veitingastaðurinn Jómfrúin staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Næstu þrjá laugardaga verða tónleikarnir í beinni útsendingu á RÚV en á morgun mæta Tómas R. Einarsson og Bogomil Font á svæðið og hreyfa lendarnar á sólþyrstum gestum. En þetta er orðin ansi langlíf tónleikaröð og Jakob Einar Jakobsson, vertinn á Jómfrúnni, mætti til okkar í spjall.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, átti fund með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra um húsnæðismál samtakanna í gær. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í vikunni úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá því í mars um gefa Samhjálp leyfi til opna nýja kaffistofu á Grensávegi. Ráðgert var opna þar fljótlega og var búið verja milljónum í framkvæmdir. En hvað kom fram á umræddum fundi? Guðrún Ágústa kom til okkar.

Uppselt er á tvenna afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar sem fara fram í Eldborgarsal Hörpu en Stefán er sextugur í dag. Hann heldur semsagt upp á stórafmælið sitt ásamt hörðustu aðdáendum sínum í kvöld og annað kvöld og á tónleikunum fer hann yfir ótrúlegan feril sinn sem spannar 40 ár. Þetta verða ekki einungis hefðbundnir tónleikar, heldur hátíð heillar kynslóðar, sem sungið hefur með honum undanfarna áratugi. Afmælisbarnið kíkti til okkar.

Við förum yfir fréttir vikunnar eins og alla föstudaga og í þetta skipti mættu til okkar Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson úr hlaðvarpinu vinsæla Chess After Dark.

Birt

26. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,