Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir, húsfreyja á Hallfreðarstöðum 1 í Hróarstungu, betur þekkt sem Tinna tuð í Facebook-hópnum Íbúar Fljótsdalshéraðs, er á leiðinni með bílinn sinn í hjólastillingu útaf ástandinu á Hróarstunguvegi, sem liggur um byggðirnar fyrir austan. Sveitarfélagið bendir á Vegagerðina og Vegagerðin bendir á sveitarfélagið en við heyrðum í Tinnu.
Augu heimsins beinast að Íslandi í almyrkvanum í kvöld en bandaríski morgunþátturinn Good Morning America verður í beinni útsendingu frá Bláa lóninu í dag. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, mætti til okkar.
Veðurspáin fyrir almyrkvann er ekkert sérstök og búast má við að það verði skýjað þegar almyrkvinn skellur á í kvöld. Birta Líf Kristinsdóttur veðurfræðingur var í beinni útsendingu frá hljóðveri Veðurstofu Íslands.
Búast má við þungri umferð, götulokunum og stemningu í almyrkvanum í kvöld. Lögreglan stendur í ströngu og Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, var á línunni og fór yfir stöðuna.
Ferðamenn og aðrir hópast nú á Vesturland þar sem almyrkvinn mun sjást best. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, var á línunni til að fara yfir hvernig þetta gengur allt saman.
Siggi Gunnars er staddur fyrir vestan og var á línunni.