
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Mörk í samskiptum hafa afmáðst á tímum samfélagsmiðla. Það hefur flækt líf ungs fólks, sem á erfitt með að setja mörk, þeim finnst þau eiga rétt á tíma annarra, að það sé ekki töff að segja nei og þau þurfi að þóknast hvort öðru. Það er því ekki að ástæðu lausu að áhersla var lögð á öryggi og ofbeldi í Viku6 í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir er kynfræðslu- og náttúrfræðikennari þar en Vika6 er einskonar uppskeruhátíð kynfræðslunnar. Hún kom til okkar og ræddi við okkur um kynfræðslu á þessum skrýtnu og jafnvel agalausu tímum í samfélaginu.
Ísland á fjóra fulltrúa á vetrarólympíuleikunum í Cortina og Mílanó á Ítalíu hefjast formlega í dag. Um 300 klukkustundir af keppnum leikanna verða í beinni á RÚV og við heyrðum í Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni, okkar manni á staðnum.
Stór fréttavika að baki við leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Rán Ragnarsdóttir komu til okkar til að fara yfir þær. Rán er í stóru hlutverki í Ormstungu, sem hefur slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu og Bjarni stígur á svið í Skammarþríhyrningnum í Borgarleikhúsinu. Hann snýr einnig aftur í söngleikjastælum í Salnum í Kópavogi á morgun þar sem hann flytur söngleikjalög með Völu Kristínu Eiríksdóttur.
Bandaríska Ofurskálin, úrslitaleikurinn í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, er einn stærsti sjónvarpsviðburður heims á hverju ári. Í þetta skipti mætast Seattle Seahawks og New England Patriots en viðburðurinn snýst ekki bara um íþróttir heldur líka um pólitík, mat, auglýsingar og ýmislegt fleira. Við fengum sérfræðingana Henry Birgi Gunnarsson og Andra Ólafsson frá Sýn til að fara yfir þetta með okkur.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.