Morgunútvarpið

Vegagerðin, endómetríósa, heimur örveranna, siðareglur ráðherra og Masters.

Vegagerðin stefnir því setja upp veður- og upplýsingaskilti víða um land á næstunni. þegar hafa tvö skilti verið sett upp, annars vegar við hringtorgið við Selfoss og hins vegar við Biskupstungnabraut. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar ræddi við okkur.

Í myndinni Tölum um Endó tekur Þóra Karítas Árnadóttir viðtöl við átta konur og aðstandendur þeirra um reynslu þeirra af sjúkdómnum. Hún kom til okkar í spjall.

Við héldum aðeins áfram velta fyrir okkur heimi örveranna. Í þetta skiptið ætlum við tala um um mold og moltugerð. Ey­steinn Ari Braga­son Þjóðfræðingur og Helga Ögmundardóttir, dósent í mannfræði við Háskóla Íslands kíkja til okkar.

Vöggugjöf nýrrar ríkisstjórnar, ef svo kalla, frá fráfarandi forsætisráðherra birtist á vef Stjórnarráðsins í vikunni. Handbók um siðareglur ráðherra. Henry Alexander Henryson, sjálfstætt starfandi ráðgjafa og sérfræðing á sviði siðfræði, til skoðaði handbókina með okkur.

Fyrsta risamót ársins hjá karlkylfingum, Masters-mótið í dag. Þetta er 88. sinn sem mótið er halfið en Masters-mótið er eina risamótið hjá karlkylfingum sem alltaf fer fram á sama vellinum, Augusta National í Georgíu í Bandaríkjunum. Við heyrðum í Þorsteini Hallgrímssyni, kylfingi og sjónvarpslýsanda, til koma golfáhugafólki í gírinn.

Frumflutt

11. apríl 2024

Aðgengilegt til

11. apríl 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.

Þættir

,