Morgunútvarpið

Kjaramál, Aspir við vegi, njósnir í nútímahernaði, portúgalskur popúlismi, svifryk í borginni og tæknihornið.

Við höldum áfram ræða kjaramálin hér í upphafi þáttar þegar Róbert Farestsveit, aðalhagfræðingur ASÍ, var gestur okkar.

Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, var gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf átta. Við ræddum deilur um þá ákvörðun Árborgar fella aspir á Austurveginum og skort á gróðri við íslenskar götur.

Við spjölluðum við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðingur um njósnir í nútímahernaði.

Við rýndum í niðurstöður í portúgölsku þingkosningunum sem fram fóru um helgina með Eiríki Bergmanni, prófessor í stjórnmálafræði. Hægri flokkarnir eru sigurvegarar kosninganna en erfitt gæti verið mynda ríkisstjórn.

Árstími svifryksins er runninn upp. Í gær var leikskólabörnum í borginni haldið inni þrátt fyrir dásamlegt veður, vegna slæmra loftgæða. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun leit við hjá okkur í spjall um málið.

Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, var gestur okkar í lok þáttar.

Tónlist:

GDRN - Ævilangt.

THE DOORS - People are strange.

ARCTIC MONKEYS - Fluorescent Adolescent.

HJALTALÍN - The Trees Don't Like The Smoke.

Logi Pedro Stefánsson - Englar alheimsins.

HJÁLMAR - Og Ég Vil Mér Kærustu.

Gilberto, Astrud, Getz, Stan - The girl from Ipanema.

Womack, Bobby - Across 110th street.

THE STROKES - Someday.

Frumflutt

12. mars 2024

Aðgengilegt til

12. mars 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,