Morgunútvarpið

13. des. - Big Box, fjármál, Eurovision, handbolti, jólagjafir

Björn Teitsson, borgarfræðingur, var gestur okkar, en hann skrifaði grein í Heimildina á dögunum um Big Box væðingu matvöruverslana og óvéfengjanleg lífsgæði hverfisverslana. Við ræddum við hann um ásýnd nýrra verslana, arki­tekt­úr og áhrif á notendur.

Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, var svo hjá okkur venju samkvæmt, en í þetta skiptið ræddum við stöðu samfélagsmiðilsins X, áður Twitter, og áhrif þess nokkur stórfyrirtæki eru hætt kaupa auglýsingar á miðlinum.

Umræða hefur skapast um það hvort réttlætanlegt taka þátt í Eurovision verði Ísraelum ekki vísað úr keppni líkt og Rússum þegar þeir réðust inn í Úkraínu. Útvarpsstjóri hefur sagt RÚV muni taka þátt. Stjórn FTT, félags tónskálda og textahöfunda, skorar á RÚV taka ekki þátt í Eurovision árið 2024 nema Ísraelum verði meinuð þátttaka í keppninni á sömu forsendum og Rússum í síðustu keppni. Við töluðum við Braga Valdimar Skúlason formann FTT.

Ísland leikur um Forsetabikarinn á HM kvenna í handbolta síðdegis í dag. Við spjölluðum við Helgu Margréti Höskuldsdóttur, íþróttafréttakonu, um leikinn framundan og mikilvægi hans.

Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Félags mannauðsfólks, var gestur okkar í lok þáttar. Við ræddum jólagjafir og jólabónusa fyrirtækja, hvernig best snúa sér í þeim málum.

Lagalisti:

Sigur Rós - Við spilum endalaust.

REDBONE - Come And Get Your Love.

STÓRSV.REYKJAVÍKUR & BOGOMIL FONT - Ert Þetta Þú Jólasveinn.

Laufey, Jones, Norah - Have Yourself A Merry Little Christmas.

ELVIS PRESLEY - Blue Christmas.

ELTON JOHN - Philadelphia freedom.

HURTS - All I Want For Christmas Is New Year's Day.

ELÍN HALL - Er nauðsynlegt skjóta þá?

THE POGUES & KIRSTY MCCOLL - Fairytale Of New York.

DARLENE LOVE - Christmas (Baby Please Come Home).

Frumflutt

13. des. 2023

Aðgengilegt til

12. des. 2024
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,