Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands birtir stýrivaxtaákvörðun í dag og þá kemur í ljós hvort vextir verði hækkaðir enn frekar. Við ræðum málið við Ólaf Margeirsson, doktor í hagfræði, í upphafi þáttar.
Hópur grænlenskra kvenna hefur nú krafist þess að danska ríkið greiði þeim bætur fyrir mannréttindabrot vegna hinnar svokölluðu lykkjuherferðar sem varðar aðgerðir danska ríkisins frá 1966 til 1970 þar sem getnaðarvarnarlykkjum var komið fyrir hjá um 4.500 grænlenskum stúlkum og konum, í mörgum tilfellum án samþykkis, til að hægja á fólksfjölgun í Grænlandi. Við ræðum málið og mögulegar bætur við Ingu Dóra Guðmundsdóttur, samskiptastjóra Air Greenland og fyrrverandi formann Siumut-flokksins í Nuuk, sem er búsett þar.
Nýjasta flaggskip Apple, iphone 15pro selst óðum upp jafnt hér á landi sem og í bandaríkjunum og um heim allan. Háværar umkvörtunarraddir þeirra sem nú þegar hafa fengið síma í hendurnar virðist þá ekki hafa skipt þessa ótal símakaupendur miklu máli. Símarnir eru sagðir ofhitna og glerið springa auðveldlega svo eitthvað sé nefnt. Við ætlum að ræða nýjasta eplaæðið við Guðmund Jóhannsson tæknigúru morgunútvarpsins.
Á dögunum var birt vísindagrein í Nature Medicine sem styður að MDMA geti verið mikilvægur þáttur í að auka virkni samtalsmeðferða við áfallastreituröskun hjá einstaklingum með langvinna alvarlega áfallastreitu. Engilbert Sigurðsson prófessor í geðlæknisfræði og yfirlæknir við geðþjónustu Landspítala kemur til okkar að ræða málið ásamt Helgu Þórarinsdóttur, sérnámslækni í faginu.
Loksins erum við að gera eitthvað rétt og vel í umhverfismálum. Nýjar tölur Umhverfisstofnunar sýna að matarsóun á íslenskum heimilum er undir evrópumeðaltali. Þrátt fyrir það er matarsóun á hvern íslending um 160 kíló á ári. Við erum með háleit markmið og ætlum að hafa dregið úr matarsóun um 50% árið 2030 -það er eftir rúm 6 ár. Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringarásarkerfis veit allt um málið. Hann kíkir til okkar.
Samfylkingin kynnti forgangsröðun flokksins í heilbrigðis- og öldrunarmálum í byrjun vikunnar og þar var efst á blaði að fólk fái fastan heimilislækni og heimilisteymi. Nokkuð hefur verið rætt um stöðu heimilislækna og þeirrar heilbrigðisþjónustu sem hægt er að sækja á heilsugæslustöðvum undanfarið og við ætlum að ræða þau mál við Margréti Ólafíu Tómasdóttur, formann Félags íslenskra heimilislækna, og hvort það sé raunhæft að öll fái fastan heimilislækni.
Lagalisti:
LEONARD COHEN - Suzanne.
LAUFEY - Lovesick.
ELTON JOHN - Tiny Dancer.
MUGISON - É Dúdda Mía.
L