Morgunútvarpið

Talmeinafræðingar, Íran, Reykjanesskaginn, nikotínpúðar, íþróttir og stjórnmál

Við kynntum okkur störf talmeinafræðinga en 6. mars nk. er tileiknaður talþjálfun. Þá er málþing fram undan á föstudag um málþroskaröskun DLD og skólakerfið. Við fengum til okkar þær Ösp Vilberg Baldursdóttur, formann Máleflis, og Hildi Heimisdóttur, kennsluráðgjafa við Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Hlíðaskóla sem sögðu okkur meira.

Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, ræddi þingkosningarnar þar í landi um helgina, niðurstöðurnar, mótmæli og áhrif á alþjóðapólitíkina.

Við ræddum stöðuna á Reykjanesskaga við Magnús Tuma Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði.

Nikotínpúðar - heilsufarsvá er titill málþings sem fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands stendur fyrir á morgun. Þar verður fjallað um áhrif og afleiðingar notkunar nikótínpúða. Einn þeirra sem þar talar er Árni Guðmundsson aðjúnkt og sérfræðingur í æskulýðsmálum og hann kom til okkar og ræddi stöðuna hvað útbreiðslu og notkun nikótínpúða varðar.

Við tókum hefðbundið sportspjall á mánudegi með Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttamanni.

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði ræddi nýjan Þjóðarpúls, flokksráðsfund VG og útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra sem rætt verður á þingi í dag.

Tónlist:

Teitur Magnússon - FJöllin og fjarlægðin.

Eagles - One of these nights.

David Bowie - Sound and vision.

Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum.

Ásdís og Purple Disco Machine - Beat of your heart.

George Michael - Faith.

Frumflutt

4. mars 2024

Aðgengilegt til

4. mars 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,