Umhverfisstofnun hefur auglýst störf landvarða við nýju gosstöðvarnar á Reykjanesi. Þangað streymir nú múgur og margmenni en björgunarsveitirnar okkar standa vaktina í sjálfboðaliðastörfum eins og síðustu tvö skipti. Hvað þarf landvörður á svæðinu að kunna og við hverju má hann búast í sínum daglegu störfum? Ásta Kristín Davíðsdóttir landvörður á suðvesturhorninu sagði okkur allt um það.
Árið 2008 birtist frétt á Vísi þess efnis að Íslendingar gætu náð að rjúfa 400.000 manna múrinn árið 2050. Nú, 27 árum fyrr, stefnir allt í að markmiðinu verði náð í ár. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar hefur landsmönnum fjölgað ört undanfarið og eru nú 394.228 talsins. Við ræddum mannfjöldann og fjölbreytilegt samfélag við Stefán Hrafn Jónsson forseta Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.
Töluverð vitundavakning hefur orðið hjá íslendingum þegar kemur að flokkun og að nýta hlutina betur. Má eiginlega segðja að eftir hrun og síðan Covid hafi þessi hugsun eiginlega farið á almennilegt flug. Við ætlum að fá að heyra af fyrirtæki sem sérhæfi sig á þessu sviði. Efnisveitan heitir það og sérhæfir sig í að aðstoða við að framlengja lífdaga á margvíslegum efnivið í þeim tilgangi að lágmarka sóun og nýta sem best það sem jörðin gefur af sér. Til að mynda er Efnisveitan með rammasamning við Ríkiskaup til að betur megi nýta það sem stofnanir ríkisins losa frá sér. Hugi Hreiðarsson, annar eiganda Efnisveitunnar, sagði okkur meira af þessu.
Svo fengum við söngkvintett til okkar í þáttinn en kvintettinn Olga Vocal heldur 10 ára afmælistónleika í Háteigskirkju í kvöld og ætlar að gefa okkur tóndæmi.
Við höldum áfram að ræða skýrslu setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol og sölu félagsins á ríkiseigum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa kallað eftir því að þing komi saman til að ræða innihald greinargerðarinnar. Það vilja stjórnarflokkarnir aftur á móti ekki sjá og vilja ræða hana í september þegar þing kemur aftur saman. Til að ræða skýrsluna og hugsanlegar afleiðingar hennar, ef einhverjar, kom til okkar fomaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Tónlist
TODMOBILE - Stúlkan.
SANTANA - Oye Como Va.
PASSENGERS & PAVAROTTI - Miss Sarajevo.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu.
CELEBS - Bongó, blús & næs.
HJÁLMAR - Það sýnir sig.
AVRIL LAVIGNE - Complicated.
SEMISONIC - Chemistry