Aðalheiður Eysteinsdóttir listakona er þessa stundina að undirbúa sig undir gjörningamaraþon sitt en hún hyggst fremja 60 gjörninga næstu 6 dagana á sextíu ólíkum stöðum og fá með sér hátt í þrjátíu gestalistamenn. Fyrsti gjörningurinn hefst stundvíslega klukkan 10 í dag á Akureyri. Við hringdum norður til að heyra betur í listakonunni.
Marktækur munur sést á læsi hjá nemendum í fyrsta og öðrum bekk Grunnskóla Vestmannaeyja eftir að skólinn hóf þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefninu Kveikjum neistann! 83% nemenda í 2. bekk voru læsir við lok skólaárs. Þaulreyndir kennarar sjá miklar framfarir hjá nemendum milli árganga.
Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri GRV sagði okkur meira frá þessu verkefni og árangrinum sem þau sjá.
Sjálfboðaliðarnir í Slysavarnarfélaginu Landsbjörg eru að gera sig klára til þess að vera til staðar fyrir ferðamenn á hálendinu sautjánda árið í röð. En hver er þörfin á Hálendisvakt fyrir ferðamenn og hver borgar? Félagið reiðir sig á styrki frá almenningi og við fengum Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúa hjá Landsbjörg til okkar til að ræða fjáröflunina og Hálendisvaktina.
Í gær var hjúkrunarfræðingur sýknuð af manndrápi á geðdeild í Héraðsdómi Reykjavíkur en málið hefur verið áberandi í fjölmiðlum frá því andlát sjúklingsins bar að. Þetta er ekki fyrsta málið þar sem heilbrigðisstarfsmaður fer fyrir dóm vegna alvarlegs atviks í heilbrigðiskerfinu sem leitt hefur til andláts. Ragnar Freyr Ingvarsson læknir er þeirrar skoðunar að málið sé enn eitt dæmið um ámælisverð vinnubrögð fjölmiðla og að farið sé allt of geyst í umfjöllun um þau.
Hátt í fjörutíu eru slösuð í París eftir mikla sprengingu í fimmta hverfi borgarinnar en byggingin, sem hýsti listaskóla, stóð í ljósum logum og hrundi að lokum. Við ræddum við Kristínu Jónsdóttur sem búsett er í París.
Sumarið er tími bæjarhátíðanna og fólk flykkist með börn og buru á þessar hátíðir víðs vegar um landið. En ein er sú hátíð sem lætur sér ekki duga eina helgi heldur er með uppákomur allar helgar frá næsta fimmtudegi til 3. ágúst. Sjöunda árið í röð er blásið til Bæjar-og tónlistarhátíðarinnar ?Í Hjarta Hafnarfjarðar?. Páll Eyjólfsson hjá Bæjarbíói er skipuleggjandi hátíðarinnar og var hjá okkur í lok þáttar.
Tónlist
FLOTT - L'amour.
FLEETWOOD MAC - Landslide.
Chris Rea - On the beach.
Júníus Meyvant & KK - Skýjaglópur.
VALDIMAR - Yfirgefinn.
Mr. Probz - Waves (Robin Schulz radio remix).
KRASSASIG - Hlýtt í hjartanu (ft. JóiPé).
CHRISTINE AND THE QUEENS - Je te vois enfin.
Björgvin Halldórsson og Ragnh