Í ljósi sögunnar

Nauðungarflutningarnir á Krímtatörum

Í þættinum er fjallað um sögulegan bakgrunn sigurlags Úkraínu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra, nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944. Þá sakaði Jósef Stalín Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið allt fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir flutninginn. Þátturinn var áður á dagskrá í maí í fyrra.

Frumflutt

12. maí 2017

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Í ljósi sögunnar

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Þættir

,