Í ljósi sögunnar

Nauðungarflutningar á Krímtatörum

Í þættinum er fjallað um nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944, en lag um þá hörmungaratburði sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á dögunum. Jósef Stalín sakaði Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið allt fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir flutninginn.

Frumflutt

20. maí 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Í ljósi sögunnar

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Þættir

,