
Flugur
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru fyrst og fremst lög við ljóð Nínu Bjarkar Árnadóttur og lög þar sem Sjón hefur lagt til söngtextana. Einnig hljóma tvö lög við ljóð annarra höfunda. Jóhanna V. Þórhallsdóttir flytur eigið lag við ljóðið Útskýringar Önnu eftir Nínu Björk og Egill Ólafsson flytur eigið lag við ljóðin Tíminn hlær eftir Nínu Björk. Jóhanna Vigdís Arnardóttir syngur Þegar mjúki munnurinn, lag Egils við ljóð Nínu Bjarkar. Þá syngur Kristín Á. Ólafsdóttir söngtextann Land regnbogans sem Nína Björk samdi við lag eftir Donovan. Egill Ólafsson syngur eigið lag við ljóðið Krotað í sand eftir Sigurð A. Magnússon og lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Spegill eftir Jóhann S. Hannesson. Síðan eru leikin nokkur lög við söngtexta eftir Sjón. Ellen Kristjánsdóttir syngur tvö lög sem hún samdi með Pétri Ben, en textarnir eftir Sjón og Ingunn Gylfadóttir og Tómas Hermannson flytja þrjú lög þar sem Sjón lagði til textana.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.