Flugur

Sonus Futurae og Pax Vobis

Dregnar eru fram tvær stuttstkífur, annarsvegar frá árinu 1982 og hinsvegar frá árinu 1984. Tölvupopp hljómsveitin Sonus Futurae, sem var skipuð söngvaranum Jóni Gústafssyni og hljóðgervlaleikurunum Þorsteini Jónssyni og Kristni Rúnari Þórissyni, gerði fyrri plötuna sem fékk nafnið Þeir sletta skyrinu... sem eiga það. Platan inniheldur 6 lög, sem heita Samtök 69, Skyr með rjóma, Myndbandið, Sætar stelpur, Laser og Samstaða. Hin platan heitir Pax Vobis eins og hljómsveitin sem gerði hana. Þeir sem skipuðu þá sveit og spiluðu á þessari 8 laga plötu voru söngvarinn og hljómborðsleikarinn Ásgeir Sæmundsson, gítarleikarinn Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, bassaleikarinn Skúli Sverrisson og trommarinn Steingrímur Óli Sigurðsson. Lögin sem hljóma í þættinum heita Coming My Way, Warfare, I Refill, Living Drum, Somebody Somebodies Affair og Religions. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Leikin eru nokkur lög, eftir erlenda og íslenska höfundar, þar sem ljóðaþýðingar Magnús Ásgeirssonar eru í forgrunni. Anna Pálína Árnadóttir flytur Söng Fríðu, sem er líka þekkt undir heitinu Í fyrsta sinn ég þig, Gunnar Guttormsson syngur lög sem heita Mansöngvarinn og Ameríkubréf, Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann, Lónlí blú bojs syngja Laugardagskvöld á Gili, Bubbi Morthens flytur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar, Páll Óskar Hjálmtýsson syngur Enska manvísu frá 14. öld, Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við kvæðið Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt syngja kvæðið Konungurinn í Thule.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,