Flugur

Lög við ljóð Halldórs Laxness, fyrri þáttur

Fjöldi laga hafa verið samin við ljóð Halldórs Laxness í gegnum tíðina og eru nokkur þeirra dregin fram í tveimur þáttum. Gunnar Þórðarson samdi lag við ljóðið Bráðum kemur betri tíð, sem kom út á Vísnaplötunni Einu sinni var. Önnur lög sem heyrast í þættinum eru Á þjóðveginum, lag Árna Johnsen, Kveðið eftir vin minn, lag Harðar Torfasonar, Þingvallavegurinn eftir Helga R. Einarsson sem Álafosskórinn syngur, Stóð ég við Öxará, þjóðlag sem Eddukórinn syngur, Hallormsstaðaskógur, sem er í tveim útgáfum, annarsvegar erlent lag og hinsvegar lag eftir Ómar Ragnarsson. Eiríkur Bóasson flytur eigið lag við ljóðið Stríðið, Ragnheiður Gröndal syngur lag Tómasar R. Einarssonar við ljóðið Hjarta mitt, SSSól flytur eigið lag við ljóðið Þú kysstir mína hönd, Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur lag Heimis Sindrasonar við ljóðið Þótt form þín hjúpi grafir, Þokkabót syngur um Óla fígúru og Tjarnarkvartettin syngur Vorvísu, lagið er eftir Jón Ásgeirsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

20. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,