Flugur

Fjórir djúpraddaðir

Leikin eru lög með fjórum djúprödduðum söngvurum, einum breskum og þremur íslenskum. Long John Baldry sem söng lagið She Broke My Heart á fyrstu stóru plötu Stuðmanna, Sumar á Sýrlandi er fyrstur. Hann syngur fyrst lagið Let Heartaches Begin sem fór á toppinn í Bretlandi 1967, síðan She Broke My Heart og lokum You've Lost That Loving Feeling með söngkonunni Kathi McDonald. Þá tekur Skapti Ólafsson við og syngur lögin Mikið var gaman því, Syngjum hátt og dönsum og Ef mamma vissi að. Jakob Frímann Magnússon syngur lögin Saurlífisseggur, Argentína og Vestmannaeyjar og síðastur er Valdimar Örn Flygenring sem syngur Hvílíkur maður úr leikverkinu Síldin kemur og Sólin með hljómsveit sinni sem heitir Hráefni.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

27. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Leikin eru nokkur lög, eftir erlenda og íslenska höfundar, þar sem ljóðaþýðingar Magnús Ásgeirssonar eru í forgrunni. Anna Pálína Árnadóttir flytur Söng Fríðu, sem er líka þekkt undir heitinu Í fyrsta sinn ég þig, Gunnar Guttormsson syngur lög sem heita Mansöngvarinn og Ameríkubréf, Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann, Lónlí blú bojs syngja Laugardagskvöld á Gili, Bubbi Morthens flytur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar, Páll Óskar Hjálmtýsson syngur Enska manvísu frá 14. öld, Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við kvæðið Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt syngja kvæðið Konungurinn í Thule.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,