Flugur

Lög við ljóð skáldsins frá Fagraskógi

Fimmti þátturinn af sex þar sem dregin eru fram lög sem hafa verið samin við ljóð Davíðs Stefánssonar. Helgi Eyleifur Þorvaldsson syngur eigið lag við ljóðið Skugginn, hljómsveitin Farandskuggar leikur lag við ljóðið Fjallalíf, hljómsveitin Sigurboginn flytur lög við ljóðin Hrafnamóðir og Stjörnurnar, Kristófer Jensson syngur lag við ljóðið Svarti byrðingurinn, Atli Rafn Sigurðsson syngur lag sem samið er við fyrstu erindi ljóðsins Örlög og nefnist Ég hef farið um víða veröld, Ingólfur Steinsson syngur Lofið þreyttum sofa og hann syngur með Sunnu dóttur sinni lag við ljóðið fækkar þeim óðum, Ingibjörg Ingadóttir syngur lag við ljóðið Yngismey og Pálmi Gunnarsson syngur lag við ljóðið Litli víkingurinn. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

1. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,