Flugur

Söngvar og kvæði

Lögð er áhersla á ljóð þekktra skálda og lög sem hafa verið samin við þau, þó svo fyrsta lagið þeirrar gerðar það er óvíst hvort kom á undan, kvæðið eða lagið. Það er kvæðið Blástjarnan eftir Bjarna Thorarensen, en höfundur lagsins er ókunnur. Djasskvartettinn Norr 4 leikur það lag. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir flytja Ég bið heilsa, ljóð Jónasar Hallgrímssonar og lag Inga T. Lárussonar. Pálmi Gunnarsson syngur lag við ljóðið Draumur aldamótabarnsins og Stefán Hilmarsson syngur Vetrarljóð, bæði lögin eftir Magnús Þór Sigmundsson og kvæðin eftir Margréti Jónsdóttur. Anton Kristinn Guðmundsson syngur tvö kvæði langafa síns Guðmundar Böðvarssonar, en lögin eru annarsvegar eftir Auði Haraldsdóttur og hinsvegar Sigurð Rúnar Jónsson. Þetta eru Völuvísa og Fylgd. Tvíeykið Þau flytja þrjú lög Garðars Borgþórssonar við ljóð skáldkvenna, við ljóðin Vont og verst og Til kvæðagyðjunnar eftir Ólöfu frá Hlöðum og Heyrði ég í hamrinum við ljóð Huldu. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

16. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Leikin eru nokkur lög, eftir erlenda og íslenska höfundar, þar sem ljóðaþýðingar Magnús Ásgeirssonar eru í forgrunni. Anna Pálína Árnadóttir flytur Söng Fríðu, sem er líka þekkt undir heitinu Í fyrsta sinn ég þig, Gunnar Guttormsson syngur lög sem heita Mansöngvarinn og Ameríkubréf, Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann, Lónlí blú bojs syngja Laugardagskvöld á Gili, Bubbi Morthens flytur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar, Páll Óskar Hjálmtýsson syngur Enska manvísu frá 14. öld, Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við kvæðið Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt syngja kvæðið Konungurinn í Thule.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,