Nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð íslenskra skálda hljóma í þessum þætti. Fyrst eru tvö lög eftir Torfa Ólafsson, annarsvegar Systkinin sem Torfi samdi við ljóð Einars H. Kvaran og Pálmi Gunnarsson syngur og hinsvegar Frostrósir við ljóð eftir Örn Arnarson sem Berglind Björk Jónasdóttir syngur. Leifur Gunnarsson samdi lag við ljóðið Náttúruraddir eftir Örn Arnarson sem Ingrid Ösp Kjartansdóttir syngur. Hlynur Þorsteinsson syngur eigið lag við ljóðið Suðrænar rósir eftir Jónas Guðlaugsson, Hildur Vala Einarsdóttir syngur lag Sigurðar Bjólu við ljóðið Mannkynssaga fyrir byrjendur eftir Stein Steinarr og Ellen Kristjánsdóttir syngur Lífið, ljóð og ég eftir Stein Steinarr, en Jón Ólafsson samdi lagið. Þórunn Lárusdóttir syngur Afmælisdiktur Þórbergs Þórðarsonar, lagið er eftir Atla Heimi Sveinsson og Björgvin Halldórsson syngur um Selju litlu, lag sem Jón frá Hvanná samdi við ljóð Guðmundar Inga Kristjánssonar. Söngkvartettinn Út í vorið syngur Litla skáld á grænni grein, ljóð Þorsteins Erlingssonar en lagið er eftir Gunnar Sigurgeirsson. Karlakórinn Heimir ásamt einsöngvaranum Pétri Péturssyni flytja lokalagið Ef ætti ég hörpu eftir Pétur Sigurðsson en ljóðið er eftir Friðrik Hansen. Umsjón: Jónatan Garðarsson.